Pernille L. Møller er menntaður reiðkennari frá Háskólanum á Hólum árið 2013 og býður upp á kennslu fyrir nýbyrjendur og reynda knapa á öllum aldri. Í gegnum árin hef hún verið að kenna bæði á Íslandi og erlendis, þar á meðal í Danmörku, Bandaríkjunum og Swiss, og hefur einnig réttindi til að kenna og dæma knapamerki. Það er hægt að fá kennslu á íslensku, dönsku, ensku og þýsku (þýskan er þó ekki alveg fljótandi ennþá, en skiljanleg). Að auki skilur hún norsku og sænsku.
Í einkakennslunni er mikið lagt upp úr að bæta samspil knapa og hests og unnið er út frá þjálfunarstigi hestsins og reynslu/getu knapans. Einnig er lögð áhersla á að knapinn læri að setja sér markmið og þjálfa þau markvisst svo að hesturinn læri að svara ábendingum knapans rétt - að hesturinn komist bæði í líkamlegt og andlegt jafnvægi. Þannig verða þjálfunin/útreiðartúrinn jákvæð og skemmtileg fyrir bæði hest og knapa.
Verðlisti:
Einkakennsla (1 klst.) 6000 kr.
Námskeið geta verið bæði helgar- og einsdagsnámskeið, hópkennsla eða einkakennsla.Hafa samband um verð og fyrirkomulag.