Pernille Lyager Möller er fædd 1989 og uppalin í Holstebro í Danmörku. Hún fór í fyrsta skipti á hestbak 7 ára gömul og tveimur árum seinna eignaðist hún fyrsta íslenska hestinn. Í mörg ár fékk hún reiðkennslu í reiðskóla með íslenskum hestum. Öllum frítíma var eytt í hesthúsinu og þannig var ekki aftur snúið. Áhuginn var alltaf stöðugt vaxandi og byrjaði hún fljótlega að keppa og árið 2003 varð hún Danmerkurmeistari í fjórgangi og tölti unglinga.
Árið 2002 kom Pernille í fyrsta skipti til Íslands í sumarfríi með móður sinni og systur. Eftir það fór hún ein til Íslands næstum því hvert sumar, bæði í frí hjá vinafólki eða til að vinna við hesta (þ.á.m. í hestaferðir o.fl.).
Þegar stúdentsprófi lauk haustið 2009 flutti Pernille til Íslands. Þar fór hún að vinna hjá Viðari Bragasyni og Ólafíu Snælaugsdóttur á Björgum í Hörgárdal (www.bjorg1.is) í eitt ár áður en hún fór í Hólaskóla. Í verknámi sínu frá Hólaskóla vann Pernille hjá Lenu Zielinski á Efra-Hvoli og þegar 3. árið var búið fór hún að vinna hjá Sigurði Sigurðarsyni í Þjóðólfshaga. Samliða vinnunni hefur Pernille mjög gaman af að keppa og hefur keppt mikið og með góðum árangri. Þar á meðal vann hún A-flokkinn á Fjórðungsmóti Austurlands 2013 og fékk þar einnig FT verðlaun fyrir reiðmennsku og ásetu.
Eftir að vera búin með háskólanám á Hólum og komin með B.S. í reiðkennslu og reiðmennsku fór Pernille að vinna sjálfstætt árið 2014. Pernille er með aðstöðu í Þjórsábakka í Flóa og býður þar upp á tamningu, þjálfun og kennslu. Einnig býður hún upp á kennslu jafnt innanlands sem erlendis - sjá meira undir reiðkennsla og reiðnámskeið.